4 kjúklingabringur (keypti frosnar frá Rose Poultry)
1 sæt kartafla
1 pk Toro mexíkönsk súpa
1/2 lt rjómi
4 dl vatn
chunky taco sósa (stóru krukkurnar)
Meðlæti
Doritos flögur
rifinn ostur
sýrður rjómi.
Ég byrja að skera sætu kartöflurnar í litla tengina og set í skál. Sker svo kjúklingabringurnar í litla bita.
Steiki kjúklinginn í potti með smá olíu, set svo súpupakkninguna útí og leyfi að malla smá í 1 min eða svo, svo set ég rjóma, vatnið og salasasósuna útí og leyfi að malla í ca 20 min, set svo sætu kartöflurnar útí og malla þangað til þær eru orðnar mjúkar og þá er súpan bara tilbúin, þetta er mjög þæginleg matreiðsla. Er ekkert að krydda þetta neitt aukalega, því bragðefnin eru í súpupakkningunni.
Ég kaupi orðið alltaf ost og ríf niður heldur en að kaupa rifna ostinn í búðunum, mér finnst hann bara alls ekki góður á bragðið.
Svo ber maður súpuna fram með rifnum osti, sýrðum rjóma og doritos.