Innihald.
- 1 líter mjólk
- 1 bolli olía
- 1 bolli sykur
- 2 pakkar af þurrgeri
- 8 bollar hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk matarsódi
- 1 matskeið salt en ég set samt miklu minna og jafnvel sleppi því.
- Mikið af bræddu smjöri
- 2 bollar sykur
- Kanill
- _____
- sýróps/MAPLE FROSTING:
- 2 pakkar flórsykur
- 2 tsk maple bragð dropa, ég nota bara svona amerískt pönnuköku sýróp
- 1/2 bolli mjólk
- 1/4 cup brætt smjör
- 1/4 cup kaffi
- 1/8 tsk salt (ég sleppi því)
Mjólkin, sykur og olía er hitað í potti rétt að suðu, og látið svo kólna aftur við herbergishita, þá má setja gerið útí og látið liggja í ca 50 min, þá er hveitinu bætt við hrært og látið hefa sig í ca 1 klst.
Þegar deigið er búið að hefa sig þá þarf að setja 1 dl af hveiti, matarsóda, lyftiduft og salt ef þið kjósið og hnoða saman. fletjið út, hella smjör yfir og dreifa vel úr því, hella vel af sykri og kanil yfir.
Rúllið svo upp og skerið í hæfilega stóra sneiðar, ég læt þetta svo hefast á pönnuni í 30 min áður en ég set í ofninn.
Ég tók ekki tímann, heldur bara fylgist ég vel með og tek þær út þegar snúðarnir eru fallega gylltir á litinn, baka snúðanna á 180°.
Mæli með að búa til sýróps frosting og setja ofan á, það er ofsalega gott, þetta er bara algjört heaven ;)
Hérna er ameríska uppskriftin, þar er farið yfir þetta skref fyrir skref, ótrílega flottur kokkur hún Pioneer woman :)
http://thepioneerwoman.com/cooking/2007/06/cinammon_rolls_/
No comments:
Post a Comment