Ákvað að elda kjúklingaspjót í dag, hef aldrei eldað svoleiðis áður.
Þetta var virkilega gott og mikill kraftur í kjötinu.
2 pk kjúklingalundir
olía
Sambal Olek mauk
krydd - kóríander, salt, pipar, papriku krydd og chili krydd.
Blanda olíu, kryddunum og samal olek saman í stóra skál og set kjúklinginn saman við og leyfi þessu að marinerast í 3 klst ca.
Bleyti grillspjót í vatni og þræði svo kjúklingnum á spjótið þegar kjúklingurinn hefur marinerast.
Grænmetisspjót.
Velja það grænmeti sem ykkur langar í, setja á spjót og grilla með, í okkar tilfelli þá þurfti grænmetið lengri grilltíma en kjúklingurinn.
No comments:
Post a Comment