Wednesday, November 19, 2014

Kjúklingasúpa.

Í dag gerði ég ofsalega góða kjúklingasúpu, þetta er eiginlega uppáhaldssúpan á þessu heimili.




4 kjúklingabringur (keypti frosnar frá Rose Poultry)
1 sæt kartafla
1 pk Toro mexíkönsk súpa
1/2 lt rjómi
4 dl vatn
chunky taco sósa (stóru krukkurnar)

Meðlæti

Doritos flögur
rifinn ostur 
sýrður rjómi.

Ég byrja að skera sætu kartöflurnar í litla tengina og set í skál. Sker svo kjúklingabringurnar í litla bita.

Steiki kjúklinginn í potti með smá olíu, set svo súpupakkninguna útí og leyfi að malla smá í 1 min eða svo, svo set ég rjóma, vatnið og salasasósuna útí og leyfi að malla í ca 20 min, set svo sætu kartöflurnar útí og malla þangað til þær eru orðnar mjúkar og þá er súpan bara tilbúin, þetta er mjög þæginleg matreiðsla. Er ekkert að krydda þetta neitt aukalega, því bragðefnin eru í súpupakkningunni.

Ég kaupi orðið alltaf  ost og ríf niður heldur en að kaupa rifna ostinn í búðunum, mér finnst hann bara alls ekki góður á bragðið.

Svo ber maður súpuna fram með rifnum osti, sýrðum rjóma og doritos.

Rosa gott, mæli með að þið prófið þessa.



















Thursday, August 14, 2014

Kjúklingaspjót og grillað grænmeti.





Ákvað að elda kjúklingaspjót í dag, hef aldrei eldað svoleiðis áður.

Þetta var virkilega gott og mikill kraftur í kjötinu.

2 pk kjúklingalundir
olía
Sambal Olek mauk
krydd - kóríander, salt, pipar, papriku krydd og chili krydd.


Blanda olíu, kryddunum og samal olek saman í stóra skál og set kjúklinginn saman við og leyfi þessu að marinerast í 3 klst ca.

Bleyti grillspjót í vatni og þræði svo kjúklingnum á spjótið þegar kjúklingurinn hefur marinerast.

Grænmetisspjót.

Velja það grænmeti sem ykkur langar í, setja á spjót og grilla með,  í okkar tilfelli þá þurfti grænmetið lengri grilltíma en kjúklingurinn.









Thursday, August 7, 2014

Kanilsnúðar - Cinnamon rolls.



Við hjónin vorum að baka í kvöld æðislega góða kanilsnúða, þessa uppskrift fann ég á netinu fyrir nokkrum árum síðan og hef gert nokkru sinnum - en samt alltof sjalfan og mæli ég með því að þið prófið þessa uppskrift.

Innihald.

  • 1 líter mjólk
  • 1 bolli olía
  • 1 bolli sykur
  • 2 pakkar af þurrgeri
  • 8 bollar hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 matskeið salt en ég set samt miklu minna og jafnvel sleppi því.
  •  Mikið af bræddu smjöri
  • 2 bollar sykur
  •  Kanill
  •  _____
  •  sýróps/MAPLE FROSTING:
  • 2 pakkar flórsykur
  • 2 tsk maple bragð dropa, ég nota bara svona amerískt pönnuköku sýróp
  • 1/2 bolli mjólk
  • 1/4 cup brætt smjör
  • 1/4 cup kaffi
  • 1/8 tsk salt (ég sleppi því)

Mjólkin, sykur og olía er hitað í potti rétt að suðu, og látið svo kólna aftur við herbergishita, þá má setja gerið útí og látið liggja í ca 50 min, þá er hveitinu bætt við hrært og látið hefa sig í ca 1 klst.

Þegar deigið er búið að hefa sig þá þarf að setja 1 dl af hveiti, matarsóda, lyftiduft og salt ef þið kjósið og hnoða saman. fletjið út, hella smjör yfir og dreifa vel úr því, hella vel af sykri og kanil yfir.

Rúllið svo upp og skerið í hæfilega stóra sneiðar, ég læt þetta svo hefast á pönnuni í 30 min áður en ég set í ofninn.

Ég tók ekki tímann, heldur bara fylgist ég vel með og tek þær út þegar snúðarnir eru fallega gylltir á litinn, baka snúðanna á 180°.


Mæli með að búa til sýróps frosting og setja ofan á, það er ofsalega gott, þetta er bara algjört heaven ;) 

Hérna er ameríska uppskriftin, þar er farið yfir þetta skref fyrir skref, ótrílega flottur kokkur hún Pioneer woman :) 


http://thepioneerwoman.com/cooking/2007/06/cinammon_rolls_/

Sunday, July 6, 2014

Karamellu íslatte.

                                                                      
                                        Íslatte.


Fyrir 3 árum síðan byrjaði ég að drekka kaffi,  ég keypti  mér ódýrar en nokkuð góðar kaffi græjur til að svala kaffi þörfinni hjá mér. Ég keypti Dolce Gusto vél og keypti mér Nespressó flóara til að gera gott cappuccino, latte og macchiato, ég var ekki að fíla Dolce mjólkurkaffi drykkina þannig að ég  keypti mér góðan flóara.

Núna þegar það er komið "sumar" þá er ennþá skemmtilegra að búa sér til kalda kaffidrykki, við fjölskyldan skelltum okkur í sund í morgun þannig að það var tilvalið að skella í íslatte þegar við komum heim.

Íslatte.

3 pumpur (2 1/2 msk) karamellusýróp
 (ég kaupi sýróp hjá Te og Kaffi, langbesta sýrópið)
250 ml nýmjólk
1-2 msk karamella (td hægt að nota heita karamellusósu sem fæst í bónus)
klakar.


Aðferð.

Klakar, sýróp og karamella sett í glas

2 espressó skot kælt  og 250 ml mjólk við svo við, ágætt að leyfa drykknum aðeins að kólna meira áður en drukkið er.

Mér finnst mjög gott að freyða mjólkina í flóaranum en það er ekkert nauðsynlegt.

svo er öllu helt í glas og drukkið, engin geimvísindi :) 




Þetta er karamellusósan sem ég notaði núna, en mér finnst rosalega gott að búa til butterscotch karamellu frá grunni.


Þetta er kaffihornið mitt, alltaf að dekstra eitthvað við það.. Mmm!


Butterscotch caramellu sýróp (fæst í te&kaffi)
En ég á líka sykurlausa karamellusýróp, það er æði í latte-ið


Þetta er vélin mín, ódýr og góð, það þarf sko enga 100 þúsund kr vél til að búa til gott kaffi!


Svo fæst nú bara svona flóari í Ikea á um 200 kr.. hann er líka mjög góður og ég notaði hann mikið áður en ég keypti flóara.


Mjólkin fyrir..


og eftir, verður þykkari og góð froða.. Mmm...!



Þetta er alveg hrikalega gott, ekki verra að skella rjóma og karamellu yfir, en ég ákvað að sleppa því núna.






Uppskrift af butterscotch karamellu

1/2 bolli ósaltað smjör 
1 bolli púðursykur
1 bolli rjómi
1 tsk saltflögur
1 msk vanilludropar.

Aðferð.
Bræða smjór í potti á medium hita. Blanda sykrinum, rjómanum og saltinu og blanda vel saman. Ná upp suðunni og þá minnka hittann og láta sjóða örlítið/malla í 5 mínútur

Takið af hellunni, blandið vanilludropunum saman við og leyfið karamellunni að kólna og hún verður þykkt og góð. Tilvalið að nota á ís, kökur.

                                                 






Saturday, July 5, 2014

Hot Chicken núðluréttur.

Hot Chicken.

Þessi uppskrift er búin að vera í minni fjölskyldu í mörg ár. Siðan við bjuggum í englandi og var ég þá bara pínupons. Þessi réttur var ekki oft eldaður en í algjöru uppáhaldi samt, og ræðum við systkinin oft að við verðum nú að fara elda saman Hot chicken ;)   ég hef einu sinni áður reynt að elda hann en ég klúðraði honum big time, lét malla of lengi og þetta var bara núðlu, kjúklinga, beina réttur og ég varð hálf hrædd að búa hann til aftur því ég þoli ekki þegar matseld mistekst hjá mér, og það er ekki girnilegt að hafa bein hér og þar í réttinum en ég ákvað að prófa aftur, enda með nokkra snillinga sem ég get hringt í til að leita ráða hjá, Linda syss, Rikki bró og Ayoe mágkona, þau björguðu mér alveg með þennan rétt núna með ýmiskonar góðum ráðum.

En hérna kemur uppskriftin og aðferðin.

Kjúklingur (2. pakkar af vængjum sem ég sker svo í 2 hluta)
1 púrrlaukur
5 gulrætur en ég nota 1 poka af baby carrots.
7msk sesamolía
5msk sesamfræ
3 msk soja sósa
lemon gras
400gr Bean noddles (fæst í fiska.is) hægt að nota rice noodles líka, auðveldara að fá þær í búðunum.
Þriðjakryddið (smá)
salt
3-4 tsk chili krydd, eftir smekk.

Aðferð.

Ég sker kjúklingaleggina í 2 hluta og hendi frá stilkinum sem maður borðar ekki, ég sauð vatn og setti nokkra stilka af lemon gras og kjúklingatening og sauð í ca 10 min, tók kjúklingin úr vatninu og lét liggja í skál á meðan ég græjaði hitt, og tók ca 4 dl af soðinu í skál.

Skera grænmetið.

Ristið sesamfræið á pönnu, hellið svo sesamolíunni og sojasósunni við og látið malla smá, skellið svo grænmetinu við og leyfið að malla í smá tíma, þarna fór ég að setja kryddið við, chili krydd og smá þriðjakrydd og smá salt, fólk verður bara að finna hvað þeim finnst gott, ég byrjaði bara á litlu og bætti svo við, þessi réttur á að vera mjög sterkur, en það eru ekki allir sem vilja hafa hann það sterkan að það sé varla hægt að njóta þess að borða hann.

Svo set ég kjúklinginn við, helli sítrónuvatnsoðinu við, leyfði suðuni að koma upp, leyfa svo bara að malla í smá tíma, set svo meira vatn við, ca 2 dl og malla.



Bean núðlurnar þarf að sjóða aðeins, setja vatn í pott og leyfa suðunni að koma upp, setjið núðlurnar í en alls ekki lengi, bara þannig að þær ná að mýkast, erum að tala um nokkrar sekúndur, gott er að taka skæri og skera núðlurnar í pottinum, þá er mun auðveldara að blanda því svo saman við kjúklingum, en takið nú núðlurnar og setjið í pott og munið, klippa núðlurnar og blandið kjúklingaréttinum við og leyfið að malla saman í ca 20-30 min. Ég blandaði þessu saman í svona svörtum steikarpott og leyfði þessu bara að vera inní ofni við 150°hita, nennti ekki að reyna að hræra þessu saman í potti eða pönnu því þetta var frekar stór uppskrift.

Berið fram með hrísgrjónum og sojasósu.









Hérna kemur svo loka myndin, við vorum bara of gráðug að byrja að ég steingleymdi að taka "fyrir"mynd :)



Rétturinn heppnaðist mjög vel, og buðum við tengdó í mat og held þau hafi bara verið ansi sátt líka :)


Díana.